Beint frá Býli | Félag heimavinnsluaðila

Beint frá býli, félag heimavinnsluaðila - vinnsla og sala á heimaunnum afurðum á íslenskum sveitabæjum

Jóhanna á Háafelli hefur unnið mikilvægt brautryðjendastarf sem miðar að því að þróa nytjar af íslenskum geitum, sem því miður hafa víða verið litlar á undanförnum áratugum. Þessu verkefni er langt í frá lokið og nauðsynlegt er að styðja við það áfram. Forsenda þess að hægt sé að viðhalda sjaldgæfum búfjárkynjum er að þau geti staðið undir framleiðslu afurða sem hægt er að selja. Stofnverndarstyrkur eins og greiddur er með skýrslufærðum geitum getur stuðlað að varðveislu stofnsins en nytjar af geitunum skapa grundvöll að ræktun stofnsins til framtíðar

Geitakjöt er mjög hollt. Ástæðan er m.a. sú að kjötið er fitulítið en álíka próteinríkt og nautakjöt.

Hægt er að senda öllum aðilum sem selja geitakjöt fyrirspurn með því að fylla út formið hér að neðan.



captcha

Til baka

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf