Beint frá Býli | Félag heimavinnsluaðila

Beint frá býli, félag heimavinnsluaðila - vinnsla og sala á heimaunnum afurðum á íslenskum sveitabæjum

Húsavík

Húsavík er á sjávarbakkanum við sunnanverðan Steingrímsfjörð, við veg 68 um 1,5km frá vegamótum á Djúpvegi um Arnkötludal. Landið er vel gróið valllendi með sjó og lækjum og ám og á lálendi lyngásar með stararflóum á milli. Sumarhagar eru algrónir í 400m hæð með stararmóum, hallamýrum, valllendis-og lyngbrekkum.   Með sjónum er mikið fuglalíf og nokkuð æðarvarp.  Búendur í Húsavík eru hjónin Matthías og Hafdís, búfræðingar frá Hvanneyri og Hafdís einnig með meistarapróf í náttúruvísindum frá Landbúnaðarháskóla Íslands. Matthías er fimmti ættliðurinn í Húsavík frá 1878, en Hafdís er úr Heimahverfinu í Reykjavík. Þau eiga þrjú næstum uppkomin börn.   Í Húsavík hefur verið stunduð sauðfjárrækt í áratugi. Nýjasta tækni er nýtt til að bæta kjötgæði. Markmiðið er að fá lömb með mikla vaxtargetu, með þykka vöðva og litla fitu og heilsugóðar og mjólkurlagnar ær. Við tökum þátt í skýrsluhaldi fjárræktarfélaganna og nýtum okkur þá þjónustu sem þar býðst, svo sem ómmælingar og stigun lamba. Í Húsavík eru um 460 ær og eru flestar ærnar hvítar, en um 12% af er mislitar. Flestar þeirra mislitu eru svartar, mórauðar og gráar, en flestir aðrir litir eru til. Húsavíkurféð er kollótt en örfáar eru hyrndar. Vetrarfóðrun er að langmestu leyti vothey úr flatgryfju en nokkuð rúlluhey líka og þá helst út á vorin. Tún eru að mestu beitarfriðuð vor og haust. Haustbeitin er því bætt með grænfóðurrækt.   Við erum með kjötvinnslu, með starfsleyfi frá Heilbrigðiseftirliti Vestfjarða. Þar er unnið úr framleiðslu búsins, bæði lambakjöti og ærkjöti. Kjötið er sagað og vacumpakkað eftir óskum kaupenda. Þá framleiðum við Lostalengjur, sem eru kindavöðvar sem eru léttreyktir og marineraðir í aðalbláberjakryddlegi. Við reykjum líka og seljum hangikjöt. Hjá Húsavík er fuglaskoðunarhús og Matthías er svæðisleiðsögumaður á Ströndum.

Lambakjöt og Lostalengjur frá Húsavík eru á matseðli í  Heydal (http://heydalur.is),Café Riis (http://www.caferiis.is ), Kaffi Galdri (http://www.galdrasyning.is). Skammt frá Húsavík er Sauðfjársetrið í Sævangi (http://www.strandir.is/saudfjarsetur/).            

 



Opnunartími:
Allt árið. Gera þarf boð á undan sér

Býlið
Hafdís Sturlaugsdóttir og Matthías Sævar Lýðsson
Húsavík, 510 Hólmavík
Sími: 451 3393
husavik@simnet.is
http://strandalamb.is

Vörur í boði, sent eða sótt
Lambakjöt

Pantanir
845 8393
husavik@simnet.is
Merki fyrirtækis
Vesturland
Auglýsing

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf