Flýtilyklar
Holtsel
Framleiðslan hófst 23 apríl 2006 á rjómaís og eru ábúendur í Holtseli fyrstir íslenskra bænda til að framleiða mjólkur- og rjómaís úr eigin mjólk. Þá er einnig framleiddur rjómaís fyrir sykursjúka í fjórum bragðtegundum. Ávaxtaís eða sorbe fyrir þá sem eru með mjólkur- og eða eggjaóþol.Í hefðbundnum rjómaís eru til yfir 300 uppskriftir og það bætist við ein við á mánuði.
Í sorbe eru í boði yfir 100 bragðtegundir. En auðvitað er ekki nema lítill hluti af þessu á boðstólum í einu.
Holtsel er upphaflega svokölluð hjáleiga frá Grund og er fyrst og fremst kúabú.
Fjósið var byggt 1975. Það var endurbyggt 2006 og breytt í lausgöngufjós.
Í því eru 64 básar fyrir mjólkurkýr og að auki legubásar fyrir öll gjeldneyti og herbergi fyrir yngstu kálfana þannig að
það rúmar um það bil 120 gripi.

Opnunartími:
Sjá nánar á www.Holtsel.isBýlið
Guðrún Egilsdóttir og Guðmundur Jón GuðmundssonHoltsel, 601 Akureyri
Sími: 463-1159
holtsel@holtsel.is
http://holtsel.is
Vörur í boði, sent eða sótt
Heimagerður rjómaís, ís fyrir sykursjúka, sorbet, t.d. fyrir fólk með mjólkuróþol, egg úr landnámshænum, hamborgarar, nautgripakjöt, hakk,Pantanir
861-2859holtsel@holtsel.is
Norðurland


















