Flýtilyklar
Garður
Á býlinu er rekið mjólkurbú með 100 mjólkandi kúm og 200 nautgripum. Samhlið mjólkurbúinu er rekin verktakaþjónusta sem sérhæfir sig í þjónustu við bændur við öll bústörf. Nýlega hefur tekið til starfa félag á býlinu sem annast sölu á nautakjöti beint frá býli. Nautakjötið frá Garði er selt undir vörumerkinu nautakjot.is. Gripum er slátrað á viðurkennd sláturhúsi á Akureyri og síðan eru gripirnir fluttir heim að Garði og þeir úrbeinaðir af faglærðum kjötiðnaðarmanni í kjötvinnslu sem staðsett er þar. Kjötinu er svo pakkað í neytendaumbúðir.
Móttaka hópa sem vilja sjá og kynnast nútíma búskaparháttum og fá leiðsögn um búiðÍslenskt nautakjöt úrbeinað og pakkað í neytendavænar umbúðir. Hakki er pakkað í 600 gramma poka gúllasi pakkað í 700 gramma poka og vöðvum skipt niður og pakkað í loftæmdar umbúðir. Nyjungin sem bændur í Garði ætla að bjóða uppá er að geta keypt nautakjöt beint frá býli í 10 kg pökkum. Munum við bjóða uppá 4 mismunandi samsetningar af pökkum. Hægt er að fara inná heimasíðu búsins nautakjot.is og skoða myndir og upplýsingar um búið þar inni verður einnig starfrækt netverslun þar sem hægt verður að panta nautakjöt og sjá vörulistann okkar. Boðið er uppá heimsendingu á kjötinu á Akureyri og nágrenni en kaupendum annarstaðar frá er sent kjötið frosið með flutningabíl Landflutninga.
Hægt er að panta tíma til að heimsækja búið og kynnast nútíma búskaparháttum. Tekið er á móti pöntunum í gegnum netsíðu okkar eða email naut@nautakjot.is
Opnunartími:
Nautakjöt er tilbúið til sölu allt árið. Tekið á móti hópum allt árið panta þarf tíma í gegnum netfang naut@nautakjot.is eða hafa samband í 8673826Býlið
Aðalsteinn Hallgrímsson, Garðar HallgrímssonGarður, 601 Akureyri
Sími: 8673826
naut@nautakjot.is
http://nautakjot.is


