Beint frá Býli | Félag heimavinnsluaðila

Beint frá býli, félag heimavinnsluaðila - vinnsla og sala á heimaunnum afurðum á íslenskum sveitabæjum

Foss

Á Fossi er hægt að kaupa sér kind á fæti, þ.e.a.s. lifandi kind, eiga hana uppí sveit og koma og heimsækja hana. Ef þú færð þér "fósturkind" máttu nefna hana, heimsækja hana og taka þátt í lífi hennar að eins miklu leiti og þig langar. Þú getur einnig fengið af henni ullina og látið þvo hana og vinna fyrir þig. Í "eignarkind" er allt það sama og í "fósturkind" en að auki máttu velja hrút sem parast með kindinni þinni um jólin og færð síðan afraksturinn um haustið í formi kjöts. Við ábyrgjumst að þú fáir allavega einn lambskrokk af búinu ef illa tekst til en annars er það kindaeigandana sjálfa að rækta sitt kjöt sjálfir. SJÁ NÁNAR INNÁ http://www.kindur.is/

Einnig eru landnámshænuegg til sölu, hringja þarf á undan sér til að láta taka frá eggin.

Pottaplattar eru síðan trompið okkar, Íslensk hönnun úr íslenskum við. Fallegur plati til að setja á borð undir heita potta.



Opnunartími:
Eftir samkomulagi í síma 4356741 / 8921780.

Býlið
Hlédís Sveinsdóttir
356 Snæfellsbær
Sími: 892-1780 / 4356741 og 4356720
kindur@kindur.is
http://kindur.is/

Vörur í boði, sent eða sótt
Lifandi kindur til sölu - fósturkind eða eignakind. Landnámshænuegg. Pottaplattar unnir úr íslenskum við.

Pantanir
892-1780
kindur@kindur.is
Merki fyrirtækis
Vesturland


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf