Beint frá Býli | Félag heimavinnsluaðila

Beint frá býli, félag heimavinnsluaðila - vinnsla og sala á heimaunnum afurðum á íslenskum sveitabæjum

Erpsstaðir

Erpsstaðir eru alhliða ferðaþjónustubýli sem  leggur áherslu á menningartengda ferðaþjónustu, s.s. að kynna:

  • landbúnað fyrir ferðamönnum,
  • Heimavinnslu á rjómaís, skyr og ostum.

Tökum á móti hópum og kynnum starfsemina, söguna og menninguna í Dölum. 

Í sumar 2010 verður opið daglega frá 13-17.  Heimsókn í fjósið eða koma í "búðina" , versla mjólkurvörur beint frá bónda.  Bekkir og borð utandyra. 

Einnig bjóðum við uppá gistingu í gamla íbúðarhúsinu á Erpsstöðum, en það stendur á þeim stað sem Erpur byggði sinn bæ fyrir rúmum eitt þúsund árum.




Opnunartími:
Sumarið 2010 Opið daglega frá kl 13 til 17 fram til 15. sept. Eftir það eftir samkomulagi

Býlið
Helga Elínborg Guðmundsdóttir og Þorgrímur Guðbjartsson
371 Búðardal
Sími: 434 1357
erpur@simnet.is
http://erpsstadir.is/

Vörur í boði, sent eða sótt
Heimagerður rjómaís, sem ber nafnið Kjaft-æði. Pokaskyr unnið á gamla mátann og svo ostur í kryddlegi

Pantanir
868 0357
erpur@simnet.is
Merki fyrirtækis
Vesturland
Auglýsing

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf