Flýtilyklar
mjólkurvörur
Þegar litið er til innihalds mjólkur af næringarefnum
er ekki hægt að segja annað en að mjólk sé bráðholl. Í raun er mjólk næringarríkasta einstaka fæðutegundin sem völ
er á, ef frá eru talin vítamín- og steinefnabætt matvæli, eins og morgunkorn ýmiss konar. Auk þess að vera próteinrík, er
mjólk mikilvæg uppspretta 11 lífsnauðsynlegra vítamína og steinefna í fæðunni. Tvö mjólkurglös gefa þannig
nálægt 100% af áætlaðri dagsþörf 19-30 ára kvenna og karla af kalki, fosfór, joði, ríbóflavíni
(B2-vítamíni) og B12-vítamíni og uppundir helming áætlaðrar dagsþarfar af sinki, kalíum, magníum,
níasíni, B6-vítamíni og þíamíni (B1-vítamíni). Með áætlaðri dagsþörf er átt
við 2/3 af ráðlögðum dagskömmtum (RDS).Sérstaða mjólkurinnar felst kannski fyrst og fremst í hve góður kalkgjafi hún er, en mjólk er langbesta kalkuppsprettan í fæðunni. Kalk er, eins og flestum er kunnugt, mikilvægur hluti af byggingu beina, og því er mikilvægt að tryggja næga kalkinntöku, sérstaklega á uppvaxtarárum þegar kalkforðinn er að safnast fyrir í beinum. Því meiri kalkforði sem kemur í beinin áður en fullum vexti er náð um tvítugt, þeim mun þéttari verða beinin og minni líkur á beinþynningu á efri árum.
Eiginleikar mjólkurinnar gera að verkum að vinnslumöguleikar eru margbreytilegir, eins og sést á fjölbreytni þeirra afurða sem til eru úr mjólk, allt frá smjöri og ostum til skyrs og mysudrykkja.
Hægt er að senda öllum aðilum sem selja mjólkurvörur fyrirspurn með því að fylla út formið hér að neðan.
mjólkurvörur
Þessir aðilar selja mjólkurvörur, beint frá býli
Suður -Foss
Jörfi
Fljótsbakki
Árbær
Seljatunga
Eystri-Leirárgarðar
Holtsel
Glitstaðir
Lágafell
Erpsstaðir
Egilsstaðir I
Neðri-Háls
Vogafjós
Litli-Dunhagi

