Beint frá Býli | Félag heimavinnsluaðila

Beint frá býli, félag heimavinnsluaðila - vinnsla og sala á heimaunnum afurðum á íslenskum sveitabæjum

Bjarteyjarsandur

Bjarteyjarsandur er fjölskyldubú, þar sem stunduð er sauðfjárrækt, ferðaþjónusta og fátt eitt annað.
Ferðaþjónustan er grundvölluð á matvælaframleiðslunni og gestum er boðið í heimsókn í fjárhúsin.
Gönguferðir um nærumhverfið, svo sem eins og í fjöruna eru alltaf vinsælar en einnig er í boði leiðsögn um önnur svæði í Hvalfirði.
Móttaka skólahópa er fastur liður í starfseminni.
Hægt er að gista á Bjarteyjarsandi, hvort heldur sem það er í tjaldi, í sumarhúsi eða heima á bæ.
 
Á Bjarteyjarsandi hefur um árabil verið rekið Gallerý Álfhóll og þar er að finna fjölbreyttan varning framleiddan af heimafólki og hagleiksfólki í nágrenni við bæinn.
Má þar nefna glerlistaverk, skartgripi úr hvalskíðum, húfur, vettlinga og aðrar ullarvörur, skinnvarning, sultur, brauð, fíflahunang og fleira og fleira.
Sjón er sögu ríkari!





Býlið
Arnheiður Hjörleifsdóttir og Guðmundur Sigurjónsson
Bjarteyjarsandur, 301 Akranesi
arnheidur@bjarteyjarsandur.is
http://www.bjarteyjarsandur.is

Vörur í boði, sent eða sótt
glerlistaverk, skartgripi úr hvalskíðum, húfur, vettlinga og aðrar ullarvörur, skinnvarning, sultur, brauð, fíflahunang

Pantanir
arnheidur@bjarteyjarsandur.is
Merki fyrirtækis
Vesturland


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf