Beint frá Býli | Félag heimavinnsluaðila

Beint frá býli, félag heimavinnsluaðila - vinnsla og sala á heimaunnum afurðum á íslenskum sveitabæjum

Auðkúla I

Auðkúla – SVEITABAKARÍ SF.

Auðkúla er í Austur Húnavatnssýslu, 30 km. frá Blönduósi, 35 km. frá Varmahlíð, svo dæmi séu tekin. Frá Reykjavík að Auðkúlu er aðeins 3ja tíma akstur og u.þ.b. einn og hálfur tími frá Akureyri.  Á Auðkúlu er rekið lítið bakarí. Þar eru framleiddar kleinur, flatkökur, seydd rúgbrauð og gamaldags malt- og normalbrauð. Notaðar eru gamaldags aðferðir við baksturinn, sem byggja á hefðum og vöruvöndun.

Flatkökurnar eru flattar út ein og ein og deigið „soðið“. Þessi vinnsuaðferð,  gerir að kökurnar eru sérlega góðar, mjúkar undir tönn og geymast vel. Við framleiðsluna er notað eins heilnæmt hráefni og kostur er hverju sinni. T.d. óbleikt hveiti, lífrænt bankabygg og haframjöl, íslenskt heilhveiti og byggmjöl, lífræn egg  og fleira gott. Engar transfitur eða aukaefni eru í bakkelsinu frá Sveitabakaríinu.   Á Auðkúlu er einnig stunduð holda-nautaræktun. Hægt er að kaupa ¼, ½, eða heilan skrokk, unnið eftir óskum kaupanda hverju sinni.  Auðkúla er við Svínavatn, sem er gjöfult veiðivatn. Hægt er að kaupa veiðileyfi í Vatninu og í Svínadalsá, bæði stangveiði og netaveiði. Góð veiðivon er í bæði bleikju og urriða. Ágæt tjaldstæði eru við Vatnið. Svæðið er sérlega veðragott og sumarfegurð mikil.  Ef fólk vill kaupa vörur eða veiðileyfi, vinsamlegast hringið með fyrirvara, í síma 868-7951 eða sendi tölvupóst á; sveitabakstur@emax.is.


Heimasíða; www.audkula.is



Opnunartími:
Allt árið.

Býlið
Valdemar K.T. Ásgeirsson
Auðkúlu I, 541 Blönduósi.
Sími: 868 7951
sveitabakstur@emax.is
http://audkula.is

Vörur í boði, sent eða sótt
Flatkökur, kleinur, ástarpungar, o.fl. að mestu úr lífrænu hráefni. Nautakjöt. Silungur.

Pantanir
868 7951
sveitabakstur@emax.is
Merki fyrirtækis
Norðurland
Auglýsing

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf