Flýtilyklar
Akur
Garðyrkjustöðin Akur er í eigu hjónanna Karólínu Gunnarsdóttur og Þórðar G. Halldórssonar og er staðsett í Laugarási í Biskupstungum. Keyptu þau stöðina 1991 með það að markmiði að stunda þar lífræna ræktun. Stöðin er í dag 2200fm undir gleri auk pökkunar- og vinnsluaðstöðu
Öll starfsemi er vottuð sem lífræn af Vottunarstofunni Tún.Auk þess fer fram úrvinnsla afurða og þá fyrst og fremst mjólkusýring grænmetis og þá aðallega súrkálsgerð en einnig niðurlagning og súrsun grænmetis. Markmiðið er að þessar afurðir séu á markaði allt árið en þó aðallega þann tíma sem minna er af fersku og nýuppskornu grænmeti.
Opnunartími:
Allt áriðBýlið
Karólína Gunnarsdóttir og Þórður G. HalldórssonAkur, Laugarási, 801 Selfossi
Sími: 486-8966
askrift@akurbisk.is
http://www.graenihlekkurinn.is
Vörur í boði, sent eða sótt
agúrkur, kirsuberjatómatar, Lífrænt ræktaðar afurðir s.s. tómatar, mjólkursýring, niðurlagning, og pipar. Chile – piparmauk, paprikaPantanir
891-8983askrift@akurbisk.is
Suðurland
















